Aurora Foundation | Vonarstræti 4b. 101 Reykjavík | Netfang: aurorafund@aurorafund.is | Hafðu samband
Síðastliðinn föstudag, 28. nóvember var tilkynnt um tilnefningar og verðlaunaplötur Kraumsverðlaunanna í fyrsta sinn.
Kraumsverðlaunin 2008 hljóta; Agent Fresco fyrir Lightbulb Universe, FM Belfast fyrir How to Make Friends, Hugi Guðmundsson fyrir Apocrypha, Ísafold fyrir All Sounds to Silence Come, Mammút fyrir Karkara og Retro Stefson fyrir Montaña.
Metnaður og frumleiki í íslenskri plötugerð verðlaunaður með nýjum verðlaunum

Sunnudaginn 17. ágúst síðastliðinn var Fuglasafn Sigurgeirs formlega opnað við hátíðlega athöfn.
Glæsilegir útitónleikar voru haldnir við gömlu þvottalaugarnar í Laugardalnum síðastliðinn laugardag þar sem Björk, Sigur Rós, Ólöf Arnalds og Ghosdigital komu fram.

Eftir vel heppnað tónleikaferð með bandarísku rokksveitinni Queens of the Stone Age um Kanada stóð Mugison fyrir kynningartónleikum á Corsica Studios í London þann 22. maí. Tilefnið var kynning á áframhaldandi tónleikahaldi Mugison og hljómsveitar hans í sumar víðsvegar um Bretland og Evrópu - sem og útgáfa nýjustu breiðskífu Mugsion, Mugiboogie, á alþjóðavettvangi.
Kraumur vekur athygli á Innrásinni; nýju átaki sem hefur það að markmiði að greiða leið tónlistarmanna til tónleikahalds á landsbyggðinni.
Menntamálaráðherra Síerra Leóne, Dr. Minkailu Bah, heimsótti Ísland fyrir skemmstu til að veita viðtöku styrk frá Aurora velgerðasjóði. Nýtti ráðherrann tækifærið og hitti menntamálaráðherra Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur ásamt því að heimsækja ýmsar stofnanir og fyrirtæki á meðan á dvöl hans stóð.
„Megi velgerðasjóðurinn Aurora gera sem flestum kleift að sjá yfir sjóndeildarhringinn!“ sagði Ingibjörg Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Aurora, meðal annars þegar hún setti samkomu í Þjóðminjasafninu á miðvikudaginn var, 23. janúar, í tilefni af því að tilkynnt var um fyrstu styrktarverkefni sjóðsins.