Fréttir

Úthlutun úr Hönnunarsjóði Auroru 17.febrúar 2010

18.2.2010

 

Átta hönnuðir og arkitektar fengu úthlutað samtals 7.880.000 kr. úr Hönnunarsjóði Auroru í gær við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands þar sem Marengs sá um snilldar veitingar.

 Ingibjörg Kristjánsdóttir, stjórnaformaður Hönnunarsjóðs Auroru.

Þrjú ný verkefni fá styrk að þessu sinni, en að baki þeim stendur fjölbreyttur hópur fólks.

  • Fyrst má nefna fimm unga arkitekta sem kalla sig “Skyggni Frábært”. En þau hljóta styrk til þróunar verkefnisins "Ylhús fyrir alla". Hópinn mynda arkitektarnir : Ástríður Magnúsdóttir, Bjarki Gunnar Halldórsson, Helgi Steinar Helgason, Hildur Gunnlaugsdóttir og Hildur Steinþórsdóttir. Verkefnastjórn er í höndum Sólveigar Thorlacius, mannfræðings. Um er að ræða þverfaglegt samstarfsverkefni ólíkra aðila um ylhús víðsvegar um Reykjavíkurborg, sem borgarbúar geta fengið aðgang að til þess að rækta grænmeti og matjurtir. Ylhús þessi eru innblásin af skólagörðum  ÍTR á höfuborgarsvæðinu og litríkri gróðuhúsamenningu Íslendinga.
  • Hörður Lárusson grafískur hönnuður fær styrk til hönnunar á  bók sem fjallar um og sýnir  hvernig skal umgangast íslenska fánann með virðingu og svo rétt sé. Mikið er til af reglum sem á að fara eftir og mýtum sem er óþarfi að fylgja. Bókin verður mjög sjónræn og á því að verða mjög þægileg í notkun og auka almenna þekkingu og skilning á fánanum okkar. Stefnt er að útgáfu bókarinnar þann 17. júní næstkomandi.
  • Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt, fær styrk til frekari vöruþróunar, gerð viðskiptaáætlunar og kynningarefnis tengdu húsgögnunum "FurniBloom", sem verða notuð í breyttri mynd í samnorrænni sýningu landslagsarkitekta í tengslum við World Expo 2010 í Shanghai. Við það tækifæri opnast möguleiki á frekari kynningu á húsgögnunum og verður stefnt að því að koma þeim á framfæri á alþjóðlegum markaði. Með styrknum gefst tækifæri til fara í frekari vöruþróun, gera viðskiptaáætlun og kynningarefni

 

 

 

 

Hönnunarsjóðurinn mun halda áfram stuðningi við eftirtalda einstaklinga, sem öll eru í markaðssókn erlendis;

  • Hugrún Árnadóttir og Magni Þorsteinsson með skólínu sína Kron by KronKron.
  • Hönnunarhópinn Vík Prjónsdóttir.
  • Bóas Kristjánsson fatahönnuð með merki sitt 8045.

Auk þessa eru veittir tveir styrkir til nýlega útskrifaðra hönnuða til starfsreynslu hjá starfandi hönnuði eða arkitekt á Íslandi. Hönnunarsjóðurinn kynnti slíka styrki fyrst í Október s.l. Þetta eru annarsvegar Kristrún Thors vöruhönnuður til starfsreynslu hjá Guðrúnu Lilju Gunnlaugsdóttur í Studio Bility. Hinsvegar Laufey Jónsdóttir, fatahönnuður sem fær nú úthlutlað seinni hluta styrks sem úthlutað var í Október s.l. en hún vinnur að hönnun fatalínunnar Blik hjá Glófa ehf.

Uthlutun hönnun 2010 - HlinAð þessu sinni bárust Hönnunarsjóðnum 62 umsóknir á sviði arkitektúrs, grafískrar hönnunar, landslagsarkitektúrs, fatahönnunar og vöruhönnunar. Fjölbreytileiki umsóknanna gefur Hönnunarsjóðnum tækifæri til að breikka starfssvið sitt enn frekar og koma að fjölbreyttum verkefnum á öllum sviðum hönnunar og arkitektúrs.

Um er að ræða fyrstu úthlutun ársins af þremur en næsta úthlutun er áætluð í maí og svo í  september. Umsóknarfrestur verður auglýstur sérstaklega á heimasíðu sjóðsins (http://www.honnunarsjodur.is/). Þetta er gert til að mæta enn frekar hraða og veltu verkefna í faginu.

Hönnunarsjóður Auroru var stofnaður 13 febrúar 2009 af Auroru Velgerðarsjóði og er því árs gamall um þessar mundir. Á fyrsta starfsári Hönnunarsjóðsins hlutu 18 verkefni alls 22.660.000 kr í styrki, en þar af koma 3.660.000 kr til greiðslu á þessu ári. Fatahönnuðir og vöruhönnuðir voru atkvæðamestir í umsóknum og einnig úthlutuðum styrkjum, en samstarfsverkefni sjóðsins voru hins vegar af ýmsum toga, t.d  Hagnýtt Hádegi, fyrirlestrarröð um praktísk málefni, Íslensk samtímahönnun, farandsýning Hönnunarmiðstöðvar Íslands til kynningar á íslenskri hönnun erlendis og Auroru letrið, Copper Stencil eftir Gunnar Þór Vilhjálmsson. Að auki kynnti Hönnunarsjóðurinn sérstaka styrki til nýlegra útskrifaðra hönnuða og arkitekta í starfsreynslu hjá starfandi fagfólki.    

Meðal þeirra sem sjóðurinn hefur styrkt og starfað með á þessu fyrsta starfsári sínu má nefna Andreu Maack, Bóas Kristjánsson, Charlie Strand, Jón Björnsson, Hugrún Árnadóttir og Magni Þorsteinsson, Gunnar Þ. Vílhjálmsson, Guðrúnu Lilju Gunnlaugsdóttur, Katrínu Ólínu, Lindu Björg Árnadóttir, Laufeyju Jónsdóttur, Söru Maríu Júlíusdóttur, Sonju Bent, Snæbjörn Stefánsson, Stefnumót bænda og hönnuða við LHÍ og Hönnunarmiðstöð Íslands. Hönnunarsjóðurinn er stoltur bakhjarl og samstarfsaðili allra þessara verkefna.

 

Nánari upplýsingar og myndefni veitir:

Hlín Helga Guðlaugsdóttir, frkvstj. Hönnunarsjóðsins

s. 699-7733 / hlin@honnunarsjodur.is

http://www.honnunarsjodur.is/

 

 




Fréttir




Flýtileiðir


ungi
Þetta vefsvæði byggir á Eplica