Bygging barnadeildar í Malaví

2.7.2008

Eins og fram hefur komið styrkir sjóðurinn byggingu á barnadeild við héraðsjúkrahúsið í Mangochi, Malaví.

Barnadeild_Malawi_Eins og fram hefur komið styrkir sjóðurinn byggingu á nýrri barnadeild við héraðsjúkrahúsið í Mangochi héraðið í Malaví. Það er því mjög ánægjulegt að geta sagt frá því að framvinda verksins er í samræmi við væntingar.

Eins og fram hefur komið styrkir Aurora velgerðarsjóðurinn byggingu nýrrar barnadeildar við héraðssjúkrahúsið í Mangochi héraðið í Malaví.

Byggingarframkvæmdir hófust í apríl síðastliðnum og er verkið á áætlun.

Aurora_Project_002Gert er ráð fyrir að barnadeildin verði tilbúin í lok árs 2008. Á hinni nýju barnadeild verða rúm fyrir 24 börn í einu og verður öll aðstaða eins og best verður á kosið. Þessi bætta aðstaða er á vissan hátt bylting í heilbrigðisþjónustu á svæðinu og eru miklar vonir bundnar við barnadeildina.

Það er að frumkvæði Sigurðar Guðmundssonar Landlæknis að ráðist var í verkefnið en hann vann á svæðinu og þekkir því vel þörfina, en jafnframt hverju hægt er að áorka með nýju barnadeildinni.

 

Barnadeild_Malawi_1Íbúar á svæðinu eru afar þakklátir og fylgjast grannt með framkvæmdum. Þeir vita sem er að sá aðbúnaður sem þessi nýbygging veitir getur skipt sköpum í lífi lítils barns.

 

 

 

 

 








Leita á vefnum


Flýtileiðir



tonleikar-krakkar

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica