Ný stjórn Aurora velgerðasjóðs var kjörin á stjórnarfundi 18.október 2010. Hana skipa:
Ingibjörg Kristjánsdóttir og Ólafur Ólafsson,:
„Við ákváðum að stofna sjóðinn í framhaldi af menntaverkefni, sem við ýttum úr vör í Síerra Leóne, og samstarfsverki um uppbyggingu Landnámssetursins í Borgarnesi. Þetta er hluti af sjálfsagðri og eðlilegri samfélagsábyrgð og Aurora velgerðasjóður er nauðsynlegur til að marka myndarlegum og markvissum stuðningi farveg við góð málefni hérlendis og erlendis í framtíðinni.
Við fengum til liðs við okkur öflugt og áhugasamt fólk í sjóðsstjórnina og þessi hópur ætlar að láta verkin tala í þróunaraðstoð og stuðningi verkefna sem göfga mannlífið á Íslandi.
„Ég hef einfaldlega áhuga á málefnum sem velgerðasjóðurinn ætlar að fást við og hef kynnst því af eigin raun í Malaví að verkefni skortir ekki í Afríku. Það kom í ljós að hugmyndir mínar og stofnenda sjóðsins um markmið og leiðir fara saman og vonandi hoppa fleiri upp í þennan vagn hjá okkur!“
Auður Einarsdóttir
Formaður sjóðsstjórnar: Ingibjörg Kristjánsdóttir
Framkvæmdastjóri sjóðsins: Auður Einarsdóttir
Heimilisfang: Vonarstræti 4b, 101 Reykjavík