Ingibjörg Kristjánsdóttir
Ingibjörg Kristjánsdóttir lauk námi í landslagsarkitektúr frá New York City University 1991 og hóf starfsferil sinn í faginu á Borgarskipulagi Reykjavíkur 1991-1995. Síðan varð hún sjálfstætt starfandi landslagsarkitekt og gekk síðan til liðs við Landmótun ehf. árið 1998. Hún varð meðeigandi í Landmótun 1999 og sinnti þar stjórnarformennsku fram til 2005 er hún seldi hlut sinn, og flutti til London.
Ingibjörg tók um skeið virkan þátt í félagsstörfum fyrir Félag Íslenskra Landslagsarkitekta, vann í ýmsum nefndum og sat í ritstjórn 'AT' sem er fagtímarit arkitekta og landslagsarkitekta í þrjú ár. Hún sat í stjórn FILA 2002-2005 og þar af sem formaður seinni tvö árin.
Ingibjörg sat í stjórn UNICEF á Íslandi fram til ársins 2007 og situr nú í stjórn Landnámssetursins í Borgarnesi og í framkvæmdastjórn Hönnunarmiðstöðvar íslands.

