Ólafur Ólafsson
Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, lauk viðskiptafræðiprófi frá Háskóla Íslands 1984. Hann stundaði útflutningsstarfsemi á eigin vegum 1977-1984 og var síðan framkvæmdastjóri Iceware Frakklandi og Iceware US 1984-1986. Hann hóf störf hjá Álafossi Inc. 1987 og var forstjóri fyrirtækisins 1990-1992. Þá lá leiðin til Samskipa og þar varð hann forstjóri 1993 og hefur síðan verið starfandi stjórnarformaður frá 2003.
Ólafur hefur verið stjórnarformaður SÍF hf., síðar Alfesca, frá 1999 og var um skeið í stjórnum Olíufélagsins hf. og Kers hf. og var í stjórn Rauða kross Íslands. Landbúnaðarráðherra skipaði hann í fyrstu stjórn Landbúnaðarsafns Íslands á Hvanneyri árið 2007.

