Sigurður Guðmundsson

Sigurður Guðmundsson tók við embætti forseta heilbrigðisvísindasviðs HÍ á haustmánuðum 2008. Hann lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands 1975 og doktorsprófi frá sama skóla 1993. Hann lauk sérfræðiprófi í lyflækningum frá University of Wisconsin í Madison í Bandaríkjunum 1981 og í smitsjúkdómum frá sama skóla 1984.

Hann hóf starfsferil sinn sem aðstoðarlæknir á Borgarspítala og Landspítala 1975-1978 og varð síðar sérfræðingur í lyflækningum og smitsjúkdómum á sjúkrahúsum í Bandaríkjunum og á Íslandi. Hann var stundakennari í Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og Tækniskóla Ísland, dósent og síðar prófessor í lyflæknisfræði við Háskóla Íslands 1989-1999. Hann var settur aðstoðarlandlæknir 1997 og skipaður landlæknir ári síðar og var í því embætti í 10 ár.

Sigurður var um skeið í forystusveitum Félags læknanema og Læknafélags Reykjavíkur og hefur starfað í fjölda nefnda á vegum læknadeildar HÍ, Borgarspítala, Landspítala, heilbrigðisyfirvalda, læknafélagnna og ýmissa ráðuneyta. Hann sat um árabil í ritstjórn Læknablaðsins og var í stjórn Samtaka íslenskra lækna gegn kjarnorkuvá 1985-1987.

Sigurður Guðmundsson og eignkona hans, Sigríður Snæbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, voru í Malaví 2006-2007 og störfuðu þar á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands.



Senda grein

Flýtileiðir



krakkar

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica