Aurora

Axlar-Björn í meðhöndlun Vesturports, Íslenski dansflokkurinn og Ohad Naharin með MINUS 16, Sýning ársins eftir 16 elskendur og Brúðuleikhúsið 10 fingur með Litla Skrímslið 

eru styrktarverkefni sviðslistastyrks Auroru velgerðasjóðs

IMG_7992


Aurora velgerðasjóður úthlutaði miðvikudaginn 25. maí, 10 milljónum til sviðslista en  styrkurinn var tilkynntur í árlegri úthlutun sjóðsins 15. febrúar síðastliðinn þegar úthlutað var rúmlega 100 milljónum til ýmissa verkefna á sviði mannúðar, mennta og menningar hérlendis og í Afríkuríkinu Síerra Leóne.  

Sviðslistir á Íslandi eru í mikilli framþróun og hefur sköpunarkrafturinn vakið athygli út fyrir landsteinana. Aurora  hefur ákveðið að styðja sviðslistir á Íslandi þ.e. leikhús, listdans og óperu samkvæmt skilgreiningu Leiklistarsambands Íslands um 10 milljónir króna. Með þessum styrk vill Aurora efla enn frekar sviðslistir með því að styrkja framúrskarandi verkefni sem væntanlega munu hafa varanleg áhrif og nýtast til framtíðar. 

Sjóðnum bárust alls 67 umsóknir sem var langt umfram það sem búist var við og er því ljóst að um mikla grósku er að ræða á vettvangi sviðslista á Íslandi.   Stjórn Auroru fékk með sér í lið þau Viðar Eggertsson leikstjóra og Ingibjörgu Þórisdóttur dramatúrg og leiklistagagrýnanda, til að veita faglega ráðgjöf við val á verkefnum en lögð var mikil áhersla á að verkefnin væru listræn, metnaðarfull og unnin af fagfólki.

 Styrktarverkefnin eru:

  • Vesturport – Nýtt leikrit byggt á þjóðsögunni um Axlar-Björn = 4 milljónir
  • Íslenski dansflokkurinn – Uppfærsla á verki Ohad Naharin, Minus 16 = 3 milljónir
  • 16 elskendur – Sýning ársins = 2 milljónir
  • Brúðuleikhúsið 10 fingur – Litla skrímslið = 1 milljón





Taktu þátt

taktuthatt3

Viltu taka þátt í verkefninu


Aurora velgerðasjóður veitir viðtöku framlögum og áheitum frá einstaklingum, fyrirtækjum og félögum. Fjármununum verður varið til stuðnings menningar- og mannúðarverkefnum til almannaheilla í samræmi við markmið sjóðsins í skipulagsskrá.



Leggðu þitt af mörkum


Fréttir

16/2/2011 : Sviðslistir, Rústabjörgunarsveitin Ársæll og sýning Louise Bourgouis í Listasafni Íslands eru ný styrktarverkefni Auroru velgerðasjóðs

Louise-Bourgeois-ljosm.-Dimitris-YerosÍ dag 16.febrúar úthlutar Aurora  Velgerðasjóður í fjórða sinn um 100 milljónum króna til sex verkefna á sviði mannúðar, mennta og menningar hérlendis og í Afríkuríkinu Síerra Leóne.  

Lesa meira
 

22/12/2010 : Kraumslistinn 2010

K1

Apparat Organ Quartet, Daníel Bjarnason, Ég, Jónas Sigurðsson, Nolo og
Ólöf Arnalds eru á Kraumslistanum 2010 og hljóta plötuverðlaun Kraums.

Lesa meira
 

21/10/2010 : Haustúthlutun Hönnunarsjóðsins

H2Hönnunarsjóður Auroru veitir 6.000.000 til fjögurra verkefna.  Þetta er fimmta úthlutun úr sjóðnum síðan hann var stofnaður

þann 13.febrúar 2009.  Ákveðið var að hafa þrjár úthlutanir á þessu ári til þess að koma til móts við hraða verkefna í faginu.


Lesa meira
 




Flýtileiðir


fill
Þetta vefsvæði byggir á Eplica