MusMap.com

Hugi

MusMap.com er heimasíða fyrir klassíska tónlist og nútímatónlist sem Hugi Guðmundsson tónskáld átti frumkvæði að og setti á laggir með tæknilegri aðstoð Nuno Zimas forritara frá Portúgal. Heimasíðunni er ætlað að vera einskonar torg fyrir einleikara, hljómsveitir eða tónskáld til að kynna sig, verk sín eða verkefni og jafnframt vettvangur fyrir skipuleggjendur viðburða af öllu tagi til að finna tónlist eða tónlistarflytjendur sem hæfa einhverjum viðburði, svo dæmi sé tekið.

Markmiðið er að efla klassíska tónlist og styrkja tengsl þeirra sem að listgreininni starfa á einn eða annan hátt. Aðstandendur MusMap.com gerðu síðuna í sjálfboðavinnu. Þeir ætla að nota styrkinn frá Auroru velgerðasjóði meðal annars til að þróa og forrita kynningarkerfi fyrir tónleika og aðra viðburði og til að að greiða fyrir því að koma styrktaraðilum á framfæri, halda til haga ferilskrám (curriculum vitae) og síðast en ekki síst ætla þeir að verja hluta fjármunanna í markaðssetningu síðunnar.

Rökstuðningur stjórnar Auroru:
Mus.Map.com er afrakstur sjálfboðavinnu í þeim frumkvöðlaanda sem Aurora velgerðasjóður vill hlúa að og efla, einstætt viðfangsefni á sinn hátt og stuðlar ekki síst að því að klassísk tónlist nái eyrum ungs fólks. Hugi Guðmundsson hefur skýra framtíðarsýn í þessum efnum og og verkefnið sé tiltölulega smátt í sniðum, enn sem komið er, hefur það alla burði til að verða drifkraftur og áhrifavaldur í heimi klassískrar tónlistar um víða veröld. Vefurinn er helsti vettvangur kynningar og markaðssetningar dægurtónlistar en flytjendur, tónskáld og unnendur klassískrar tónlistar hafa hins vegar engan sameiginlegan vettvang átt þar fyrr en nú, að frumkvæði Huga.

Hugi Guðmundsson er eitt mest áberandi tónskáld sinnar kynslóðar á Íslandi og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir tónlist sína hérlendis og erlendis.

Í nóvember 2008 fékk hann sérstaka viðurkenningu Kraums, tónlistarsjóðs Auroru, fyrir geisladisk með tónverkinu Apocrypha en það hafði áður verið talið tónverk ársins í flokki sígildrar tónlistar og samtímatónlistar Íslensku tónlistarverðlaunanna 2008. Hann segist vera bæði þakklátur og glaður yfir stuðningi og viðurkenningu sem Aurora velgerðarsjóður og Kraumur sýni honum.

Hugi býr í Kaupmannahöfn og vinnur þar að listsköpun sinni. Í augnablikinu er hann að semja fyrir norska gítarista sem komust í kynni við verk hans á heimasíðunni góðu MusMap.com. Þá má nefna að Huga er ætlað að semja tónverk fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands sem gert er ráð fyrir að flytja í nýja Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu í Reykjavík fljótlega eftir að það verður opnað.

musmap
 

Senda grein


Flýtileiðir


fill
Þetta vefsvæði byggir á Eplica