Copy_(2)_of_Sierre_Leone040

Menntaverkefni Aurora í Síerra Leóne

Markmiðið er að styðja Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, og stjórnvöld Síerra Leóne í því að tryggja öllum börnum á skólaaldri grunnmenntun fyrir 2015. Aurora velgerðasjóður og UNICEF á Íslandi munu vinna í sameiningu að því marki að 85% barna í Síerra Leóne njóti grunnmenntunar í skóla árið 2010.

Menntaverkefni Aurora í Síerra Leóne

Markmiðið er að styðja Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, og stjórnvöld Síerra Leóne í því að tryggja öllum börnum á skólaaldri grunnmenntun fyrir 2015. Aurora velgerðasjóður og UNICEF á Íslandi munu vinna í sameiningu að því marki að 85% barna í Síerra Leóne njóti grunnmenntunar í skóla árið 2010.

Styrktarverkefnið í Síerra Leóne er hið stærsta og umfangsmesta á vegum Auroru velgerðasjóðs til þessa. Í krafti þess hafa nú þegar á annað hundrað kennarara hlotið þjálfun. Sjóðurinn ver jafnvirði 120 milljóna íslenskra króna til að reisa skólahús í Síerra Leóne á árunum 2008-2010. Í hverju húsi verða þrjár til sex skólastofur þar sem gert er ráð fyrir að kenna börnum á aldrinum 6-12 ára. Jafnframt útvegar sjóðurinn húsgögn og nauðsynlegan búnað í skólana og sér húsunum fyrir vatni, hreinlætisaðstöðu og leiktækjum utan dyra. Þá mun sjóðurinn standa straum af kostnaði við að mennta og þjálfa kennara, horfa jafnframt sérstaklega til menntunar og öryggis stúlkna og styðja hópastarf kvenna og mæðra.


Í umsögn stjórnar Aurora velgerðasjóðs
frá því í janúar 2008 segir meðal annars:
„Menntun er eitt helsta vopnið gegn fátækt í heiminum og gefur einkum börnum færi á mannsæmandi lífskjörum, eykur sjálfsvirðingu þeirra og hefur víðtæk áhrif til að skapa upplýst samfélag. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur að mati stjórnar Aurora velgerðasjóðs gert heildstæða aðgerðaáætlun um uppbyggingu grunnmenntunar í Síerra Leóne, einu fátækasta ríki heims. Þar er ráðist að rótum vandans og tekið á flestum þáttum sem standa í vegi þess að börn á grunnskólaaldri, einkum stúlkur, njóti þeirra menntunar sem þau eiga rétt á.“

Picture_231

Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland, segir að frá því Aurora velgerðasjóður og UNICEF hófu samstarf um menntaverkefni í einu fátækasta ríki heims, Síerra Leóne, hafi verið lyft grettistaki í menntamálum í þeim héruðum sem verkefnið nær til. „Ætla má að yfir 10.000 börn hafi fengið tækifæri til að ganga í skóla. Það er eindregið álit UNICEF að aukin menntun sé besta leiðin til að aðstoða fólk við að losna úr viðjum fátæktar. Stuðningur Auroru til þessa verkefnis er því afar mikilvægur.“



Senda grein

Flýtileiðir



strakur

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica