Fuglasafnið hlaut 20 milljóna króna styrk úr Aurora velgerðasjóðnum 20. janúar 2008.
Í rökstuðningi sjóðsstjórnar segir:
„Fuglasafn Sigurgeirs er mjög áhugavert verkefni og kærkomin viðbót við fræðslutengda ferðaþjónustu Íslendinga. Þar sameinast fræðsla og afþreying á sannfærandi hátt og safnið mun því höfða bæði til áhuga- og fræðimanna auk þess að nýtast nemendum og kennurum í skólastarfi. Síðast en ekki síst verður fuglasafnið kjörinn vettvangur til að vekja og auka áhuga ferðafólks og almennings á fuglum og náttúrufari. Að safnið skuli vera í Mývatnssveit, einstakri perlu fuglalífs í veröldinni, eykur að sjálfsögðu gildi þess enn frekar og skapar sérstök sóknarfæri.
Fjöldskylda Sigurgeirs heitins Stefánssonar á heiður skilinn fyrir að hafa lagt út í að byggja hús yfir fuglasafnið og undirbúa sýningahald þar af fádæma metnaði og þrautseigju. Stjórn Aurora velgerðarsjóðs hefur ákveðið að leggja henni lið svo Fuglasafn Sigurgeirs fái sem fyrst aðbúnað sem því ber til að auðga mannlíf og menningu í Mývatnssveit og á landinu öllu."
Stefnt er að því að opna safnið í nýjum húskynnum þess við Mývatn sumarið 2008. Hönnuður sýningarinnar þar er Axel Hallkell Jóhannesson leikmyndahönnuður.
Gert er ráð fyrir að safnið eigi m.a. samstarf við Náttúrufræðistofnun og fleiri.Arkitekt sýningarhússins er Manfred Vilhjálmsson og gaf hann vinnu sína. Margir fleiri hafa lagt safninu lið með vinnuframlagi eða fjárstuðningi. Slíkir styrktaraðilar eru til dæmis verkfræðistofurnar Línuhönnun og VGK-Hönnun, fyrirtækið Límtré, afkomendur Sigurveigar Sigtryggsdóttur frá Syðri-Neslöndum og Alþingi.
Fuglasafn Sigurgeirs
Ytri-Neslöndum
660 Mývatn
Heimasíða: www.fuglasafn.nett.is


