Um Fuglasafn Sigurgeirs
Fuglasafn Sigurgeirs er að stofni til safn eggja og fugla Sigurgeirs Stefánssonar á Ytri-Neslöndum í Mývatnssveit, náttúruunnanda og mikils fuglaáhugamanns sem fórst á Mývatni árið 1999. Hann átti þá í safni sínu um 320 uppstoppaða fugla og egg undan um 100 tegundum varpfugla á Íslandi.
Aðstandendur Sigurgeirs ákváðu að ráðast í að byggja safnahús og gera safngripina betur aðgengilega almenningi. Þannig er verki Sigurgeirs fram haldið um leið og heiðruð er minning hans. Jafnframt var ákveðið að byggja í leiðinni yfir Sleipni, bát Jóns Sigtryggssonar á Syðri-Neslöndum. Sleipnir var eitt fyrsta samgöngutæki Mývetninga.
- Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, gerðist verndari Fuglasafns Sigurgeirs árið 2004 og það ár var stofnað einkahlutafélag um uppbyggingu safnsins.
- Fyrsta skóflustunga að nýju safnahúsi var tekin 6. ágúst 2004 og árið 2006 var húsið orðið fokhelt.
- Árið 2007 var stofnað sjálfseignarfélag um safnið.
Markmið - stefna Fuglasafns Sigurgeirs
Fuglasafn fylgir siðareglum Alþjóðaráðs safna ? ICOM (International Council of Museums) við meðferð muna, aðföng og grisjun. Nærgætni og virðing fyrir safnmunum og frumkvöðli safnsins verður í hávegum höfð í starfseminni.
Markmið safnsins eru að
- safna öllum íslenskum fuglum og flækingsfuglum með sérstaka áherslu á endur í Mývatnssveit. Sérstakir erlendir fuglar verða og til sýnis.
- safna eggjum undan öllum íslenskum fuglum og flækingum. Sérstök egg erlendis frá verða einnig til sýnis.
- sýna Sleipni, bát Jóns á Syðri-Neslöndum, í sérsmíðuðu skýli við safnahúsið.
- gera grein fyrir nýtingu Mývatns, með því til dæmis að sýna hvernig Mývetningar stunduðu veiðar undir ís, fiskuðu á dorg og nýttu egg.
Fræðsla, samstarf, rannsóknir
Fuglasafn Sigurgeirs kappkostar að eiga samstarf við skóla, menningarstofnanir, einstaklinga og Náttúrufræðistofnun Íslands.
Fuglasafn Sigurgeirs mun taka þátt í rannsóknum í samvinnu við Náttúrurannsóknarstöðina við Mývatn og hafa einnig frumkvæði að eigin rannsóknum eftir því sem aðstæður leyfa.
Dæmi um rannsóknarverkefni:
- Álftatalning í Neslandavík í samstarfi við Náttúrurannsóknarstöðina við Mývatn.
- Vöktun varps í hólmum á Mývatni frá ári til árs, þ.e. í Ystahólma, Landhólma, Strók og Slútnesi.
- Vöktun flórgoðavarp við strönd Mývatns, frá Grímsstöðum að Ytri-Neslöndum.
- Samanburðarrannsóknir á dún- og eggjatöku.
- Nýting Mývatns. Skrá hvernig bændur nýttu þessa náttúruauðlind sér til framdráttar.
- Sleipnir: að afla upplýsinga um bát Jóns á Syðri-Neslöndum og skrá þær.

