Um Kraum

Kraumur - tónlistarsjóður

Orðið kraumur þýðir kjarni eða mergur

.

f58310308_kraumur_22.jpgKraumur er sjálfstæður sjóður á vegum Auroru velgerðasjóðs. Hann hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Markmiðið er að styrkja stöðu ungra tónlistarmanna á Íslandi með beinum styrkjum, faglegri aðstoð og samstarfi af ýmsu tagi. Sjóðnum er sömuleiðis ætlað að ná markmiðum sínum með því að miðla þekkingu á sínu sviði, meðal annars með námskeiðahaldi, ráðgjöf og smiðjum (workshop) og með samstarfi við ýmsa þá sem vinna að sömu markmiðum.

Ætlunin er að Kraumur styrki tiltölulega fá verkefni/listamenn en geri það þannig að stuðningurinn sé afgerandi. Hvert verkefni skal í upphafi skilgreint í tilheyrandi samningi með fjárhags- og tímaáætlun. Framkvæmdastjóri Kraums er listamönnum til halds og trausts og annast tengsl sjóðsins við samstarfsaðila og fylgir því eftir að markmiðum samstarfs og stuðnings sé náð.

Stofnendur líta á Kraum - tónlistarsjóð sem þriggja ára tilraunaverkefni sem ljúki í lok árs 2010 nema stjórn Auroru velgerðasjóðs ákveði annað.

Til ráðstöfunar hjá Kraumi hverju sinni er árlegt framlag Auroru til tónlistarsjóðsins auk vaxtatekna, annars arðs af stofnfé og annarra fjármuna sem sjóðnum kann að áskotnast. Sjóðurinn veitir framlögum og gjöfum viðtöku frá einstaklingum, fyrirtækjum og félögum og ráðstafar tekjum í samræmi við ákvæði samþykkta þar að lútandi.

Stofnfé Kraums er 20 milljónir króna og Aurora leggur sjóðnum að auki til alls 30 milljónir króna á næstu árum, þ.e. 15 milljónir króna árið 2009 og 15 milljónir króna árið 2010, samtals 50 milljónir á þessum þremur árum.

Sjóðurinn er deild innan Aurora velgerðasjóðs með sjálfstæðan fjárhag og eigin stjórn. Stjórn Aurora skipar stjórnarformann Kraums. Aðrir stjórnarmenn eru tilnefndir af formanni Kraums og samþykktir af stjórn Aurora.

Formaður stjórnar Kraums er Þórunn Sigurðardóttir en meðstjórnendur Ásmundur Jónsson og Pétur Grétarsson.

Fagráð Kraums hittist að minnsta kosti einu sinni á ári. Í því eiga sæti Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður, Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmdarstjóri Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN), Árni Heimir Ingólfsson,  tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Árni Matthíasson, blaðamaður á Morgunblaðinu, Mist Þorkelsdóttir, deildarforseti Tónlistardeildar Listaháskóla Íslands, Kjartan Sveinsson, hljómborðsleikari Sigur Rósar og SJÓN (Sigurjón Birgir Sigurðsson), rithöfundur.

Framkvæmdastjóri velur listamenn/verkefni, gerir tillögur til stjórnar Kraums um styrkhafa og leggur samninga þar að lútandi fyrir hana. Unnt er að sækja um með tilgreind verkefni en einnig getur framkvæmdastjóri haft frumkvæði að samningum við listamenn. Framkvæmdastjóri gefur nánari upplýsingar.

Gert er ráð fyrir að tilkynnt verði um fyrstu styrkhafa innan tveggja mánaða frá stofnun Kraums.

Senda grein


Flýtileiðir


ungi
Þetta vefsvæði byggir á Eplica