Um Malaví

Malawi

Malaví er eitt þéttbýlasta ríki Afríku og jafnframt meðal þeirra fátækustu í heiminum. Það var áður bresk nýlenda en íbúarnir lýstu yfir sjálfstæði 1964. Í þróunarskýrslu Sameinuðu þjóðanna, sem birt var 27. nóvember 2007, er Malví í 164. sæti af alls 177 yfir ríki heimsbyggðarinnar þegar miðað er við þjóðartekjur á mann, ævilengd, menntun og fleira. Ísland er hins vegar í 1. sæti í fyrsta sinn frá því Sameinuðu þjóðirnirnar fóru að setja saman lista af þessu tagi og skýtur nú forysturíki síðustu ára, Noregi, aftur fyrir sig.

Malavívatn er um þriðjungur landsins, þriðja stærsta stöðuvatn Afríku. Mest af fiskafla sem berst á land úr vatninu fer til manneldis heima fyrir en einnig eru veiddir skrautfiskar til útflutnings.

Í Malaví búa um 12 milljónir manna. Landið er 118.500 km² að stærð, sem svarar til þess að um um 100 manns búi á hverjum ferkílómetra að jafnaði. Til samanburðar má geta þess að Ísland er 103.000 km² og þéttleiki byggðar er því 3 íbúar á hvern ferkílómetra.

Fleiri fróðleiksmolar um Malaví:



Senda grein

Flýtileiðir



fuglar

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica