Um Malaví

Picture8Stjórn Aurora velgerðasjóðs undirbýr verkefnið í samráði við stjórnendur héraðssjúkrahússins í Mangogchi og heilbrigðisyfirvöld í Malaví. Kostnaðaráætlun liggur fyrir og unnið er að því að hanna viðbygginguna. Ætla má að framkvæmdir standi yfir í 6-8 mánuði og viðbyggingin verði því tekin í gagnið haustið 2008.

Á barnadeild héraðssjúkrahússins eru einungis 36 rúm, sem er fjarri því að vera nægilegt enda eru legusjúklingar á deildinni að jafnaði um 80 á hverjum tíma. Með framlaginu úr velgerðasjóðnum er stefnt að þvi að tvöfalda húsrými barnadeildarinnar og bæta þar við 36 sjúkrarúmum. Einnig á að koma á laggirnar 10 rúma gjörgæslu- og nýburadeildum, móttökudeild og vaktstöð fyrir hjúkrunarfólk. Jafnframt verður farið í nauðsynlegar framkvæmdir við rotþrær og fráveitulagnir tilheyrandi barnadeildinni/sjúkrahúsinu.

Ljóst er að mikil þörf er á að bæta aðstöðu til heilbrigðisþjónustu á þessum slóðum, ekki síst þjónustu við börn. Ungbarnadauði er verulegur, rúmlega tíunda hvert lifandi fætt barn deyr og dánartíðni barna undir 5 ára aldri er um 175 af hverjum 1.000 lifandi fæddum. Tæplega helmingur barna tekur ekki út eðlilegan vöxt vegna vannæringar.

Helstu dánarorsakir í Malaví eru alnæmi, lungnabóga og malaría.Tveir hinir síðarnefndu sjúkdómar einna verst á börn. Barnadeildir, sem á annað borð eru til, eru þéttsetnar börnum með þessa sjúkdóma. Því er viðbót við barnadeildina í Mangochi vissulega kærkomin.

Héraðssjúkrahúsið í Mangochi þjónar alls um 750.000 manns og er aðalspítalinn á því svæði. Í um 60 km fjarlægð er rekinn annar spítali, mun minni. Hjónin Sigurður Guðmundsson, landlæknir og stjórnarmaður í Aurora velgerðasjóði, og Sigríður Snæbjörnsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, störfuðu meðal annars á síðarnefna spítalanum þegar þau voru í Malaví á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands frá 2006 til 2007.

Senda grein

Flýtileiðir



fuglar

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica