Um verkefnið
Styrktarverkefninu er ætlað að styðja Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna - UNICEF og stjórnvöld í Afríkuríkinu Síerra Leóne til að ná því markmiði að tryggja öllum börnum á skólaaldri grunnmenntun fyrir 2015.
Verkefnið er unnið í samvinnu við landsnefnd UNICEF á Íslandi og UNICEF í Síerra Leóne. Markmið þess er að 85% barna í Síerra Leóne njóti grunnmenntunar í skóla árið 2010.
Aurora ver á árunum 2008-2010 tveimur milljónum Bandaríkjadala (jafnvirði 123,5 milljóna íslenskra króna á gengi í janúar 2008) til að reisa skólahús í Síerra Leóne. Í hverju húsi verða þrjár til sex skólastofur þar sem gert er ráð fyrir að kenna börnum á aldrinum 6-12 ára.
Jafnframt útvegar sjóðurinn húsgögn og nauðsynlegan búnað í skólana og sér húsunum fyrir vatni, hreinlætisaðstöðu og leiktækjum utan dyra. Þá mun sjóðurinn standa straum af kostnaði við að mennta og þjálfa kennars, horfa jafnframt sérstaklega til menntunar og öryggis stúlkna og styðja hópastarf kvenna og mæðra.
Menntakerfi lagt í rúst
Um þriðjungur barna á grunnskólaaldri í Síerra Leóne á ekki kost á skólagöngu. Vandinn er mestur í dreifbýlinu þar sem hlutfall barna á grunnskólabekk getur farið allt niður í 42%.
Staða stúlkna er sýnu verri en drengja sem stafar meðal annars af því að hve ungar þær eru þegar þær giftast og fara að eignast börn. Nær þriðja hver stúlka verður móðir innan 18 ára. Þá skortir konur til kennslustarfa og einnig bitnar menningar- og trúarleg mismunun af ýmsu tagi sérstaklega á stúlkum. Sama á við um margvíslegar brotalamir í skólakerfinu, til dæmis skortir víða kynskipta hreinlætisaðstöðu.
Í borgarastyrjöldinni 1991-2002 var stór hluti menntakerfis landsins lagður í rúst og því hefur fjöldi barna og unglinga hreinlega ekki átt kost á skólagöngu svo árum skiptir. Um 40% grunnskólanema eru því eldri en bekkjardeild þeirra segir til um.
Mörg skref hafa verið tekin til að byggja upp menntakerfi í Síerra Leóne á undanförnum árum. Stjórnvöld landsins ráðstafa um 20% af fjárlögum til menntamála og hafa sterkan vilja til að ná því þúsaldarmarkmiði Sameinuðu þjóðanna að koma öllum börnum á grunnskólaaldri á skólabekk fyrir 2015. Þessu markmiði ná þau hins vegar ekki án utanaðkomandi aðstoðar og þess vegna birti UNICEF aðgerðaáætlun sem miðar að því að skapa fleiri börnum í Síerra Leóne forsendur til menntunar og betri lífskjara á árunum 2008-2010.
Horft sérstaklega til mannréttinda stúlkna
Í menntaáætlun UNICEF í Síerra Leóne er gert ráð fyrir að 85% barna í Síerra Leóne verði tryggður aðgangur að grunnskólamenntun fyrir 2010. Gríðarlegt átak þarf til að ná þessu markmiði. Innan við 70% barna á grunnskólaaldri eiga kost á grunnskólamenntun. Hlutfallið er hærra í þéttbýli en á landsbyggðinni og hlutfallið er hærra meðal drengja en stúlkna. Skortur er á menntuðum og reyndum kennurum til starfa í skólum.
Í þessari aðgerðaáætlun stuðlar UNICEF að uppbyggingu barnavæns menntakerfis og skólaumhverfis. Þar vegur þungt að byggja skólahús, fræða og þjálfa kennara og kaupa skóla- og kennslugögn. Horft er sérstaklega til mannréttinda og hagmuna stúlkna í verkefninu með því að tryggja þeim uppfræðslu, reynda að veita þeim þannig vernd gagnvart kynferðislegu ofbeldi og vinna gegn hjúskap og barneignum á æskuárum.
Framhald verkefnis sem hófst 2006
Menntaverkefni Aurora er framhald verkefnis varðandi uppbyggingu samfélagsskóla í Síerra Leóne sem Ingibjörg Kristjánsdóttir og Ólafur Ólafsson hafa styrkt fyrir atbeina landsnefndar UNICEF á Íslandi frá því sumarið 2006.
- Byggðir hafa verið 50 skólar/skólaskýli í fimm héruðum Síerra Leóne (Koinadugu, Kailahun, Pujehun, Kono og Bombali) og þar geta 6.600 börn stundað nám sem þau að öðrum kosti ekki hefðu haft aðgang að. Ætla má að um 50.000 börn njóti nú góðs af verkefninu með einum eða öðrum hætti.
- Um 260 kennarar hafa hlotið þjálfun til starfa í samfélagsskólunum og fjárstyrkurinn hefur sömuleiðis verið notaður til kaupa á húsgögnum og skólagögnum.
- Verkefnið hefur stuðlað að vitundarvakningu um mikilvægi menntunar, einkum hjá stúlkum, og um fleira sem varðar réttindi barna í Síerra Leóne.
- Verkefnið hefur stuðlað að auknu samstarfi UNICEF við stjórnvöld í Síerra Leóne. Ráðuneyti menntamála, vísinda og tækni axlar þannig aukna ábyrgð á málefnum barna á afskekktum stöðum í landinu.
UNICEF á Íslandi og Síerra Leóne
UNICEF á Íslandi starfar í tveimur héruðum Síerra Leóne að því að tryggja fleiri börnum grunnskólamenntun á næstu árum. Innan við 70% eiga nú kost á grunnskólanámi en stefnt er að því að hlutfallið verði komið í 85% í árslok 2010. UNICEF stuðlar að því að byggja upp barnavænt menntakerfi og skólaumhverfi, einkum með þarfir stúlkna í huga. Jafnframt verður mikil áhersla lögð á að breyta viðhorfi og venjum í landinu þannig að börn hefji skólagöngu og ljúki henni á viðeigandi aldri.
Umbætur í menntakerfinu taka að sjálfsögðu einnig til uppbyggingar skóla, fræðslu og þjálfunar kennara og kaupum á skóla- og kennslugögnum. Reistir verða skólar með tilheyrandi vatns- og hreinlætisaðstöðu.
Þá hefur UNICEF að markmiði að auka gæði í kennslu, fjölga börnum í skólastarfi ? einkum stúlkum, auka ábyrgð samfélagsins í skólastarfi og efla lífsleikni í kennslu með áherslu á hreinlætisvenjur og forvarnir gagnvart HIV/alnæmi.

