Um Síerra Leóne
Síerra Leóne er í hópi fátækustu ríkja veraldar. Staðfestingu á því má meðal annars sjá í þróunarskýrslu Sameinuðu þjóðanna sem birt var 27. nóvember 2007. Þar er Síerra Leóne í 177. og síðasta sæti lista yfir ríki heimsbyggðarinnar þegar miðað er við þjóðartekjur á mann, ævilengd, menntun og fleira. Ísland er hins vegar í 1. sæti í fyrsta sinn frá því Sameinuðu þjóðirnirnar fóru að setja saman lista af þessu tagi og skýtur nú forysturíki síðustu ára, Noregi, aftur fyrir sig.
Síerra Leóne er við Atlantshafsströnd Vestur-Afríku með landamæri að Gíneu og Líberíu. Það var lengi bresk nýlenda en landsmenn lýstu yfir sjálfstæði 1961 og stofnuðu lýðveldi 1971. Borgarastyrjöld geisaði í Síerra Leóne á árunum 1991-2002 og kallaði ómældar hörmungar yfir land og þjóð. Tugir þúsunda manna féllu og yfir þriðjungur landamanna missti heimili sín.
Í Síerra Leóne búa um 6 milljónir manna. Landið er 71.740 ferkílómetrar að stærð, sem svarar til þess að 83 búi á hverjum ferkílómetra að jafnaði. Til samanburðar má geta þess að Ísland er 103.000 ferkílómetrar og þéttleiki byggðar er því 3 íbúar á hvern ferkílómetra.
Allt að þriðjungur barna í Síerra Leóne deyr innan fimm ára aldurs. Það er ein hæsta dánartíðni sem þekkist í heiminum. Mikill fjöldi barna býr við ömurleg lífskjör og nýtur ekki þeirra réttinda sem sjálfsögð þykja víðast annars staðar. Það á ekki hvað síst við um menntun. Þess vegna beinir Aurora velgerðasjóður kröftum sínum að stuðningi við fræðslu, menntun og jafnrétti í landinu.
- Fleiri fróðleiksmolar um Síerra Lenóne: Heimasíða UNICEF á Íslandi
- Um Síerra Leóne (á ensku): Wikipedia

