Um Aurora
Aurora velgerðasjóður var settur á laggirnar að frumkvæði hjónanna Ingibjargar Kristjánsdóttur landslagsarkitekts og Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Samskipa. Sjóðurinn var stofnaður 23. janúar 2007, á fimmtugsafmæli Ólafs.
Stofnfé Auroru velgerðasjóðs er einn milljarður króna sem stofnendur lögðu honum til. Ráðstöfunarfé sjóðsins hverju sinni eru vaxtatekjur og annar arður af stofnfé, auk annars fjár sem sjóðnum kann að áskotnast. Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun með sjálfstæða stjórn um fjármuni sem sjóðnum hafa verið afhentir með óafturkræfum hætti. Fjögurra manna stjórn var kjörin á stjórnarfundi Aurora velgerðasjóðs þann 18.október 2010 og ber hún ábyrgð á stefnumörkun og rekstri sjóðsins en hún hefur til hliðsjónar starfsreglur sem gerðar voru þegar sjóðurinn var stofnaður.
Megintilgangur sjóðsins er að stuðla að og styrkja menningar- og velgerðamál hér á Íslandi og erlendis. Áhersla er lögð á stuðning við verkefni sem geta haft víðtæk áhrif og virkað sem vítamínsprauta út í samfélagið. Í skipulagsskrá kemur fram að í hlutverki sjóðsins felist „fjárhagslegur stuðningur við einstaklinga, félög, félagasamtök og samfélög af ýmsum toga."
Stefnt er að því að með tímanum verði Aurora velgerðasjóður virkt og lifandi stuðningsafl í þróunarhjálp sem starfi náið með stjórnvöldum, hjálparstofnunum og íbúum á hverjum stað. Að sama skapi leitast Aurora við að veita menningarstarfsemi á Íslandi öflugan stuðning. Verkefni eru valin að vandlega athuguðu máli og þeim er fylgt eftir eins og kostur er. Sjóðurinn leggur áherslu á styrkja hvert verkefni myndarlega þannig að stuðningurinn geti jafnvel skipt sköpum fyrir tilurð og framgang þess. Aurora mun í sumum tilvikum hafa frumkvæði að verkefnum og hrinda þeim í framkvæmd í samvinnu við þá sem hlut eiga að máli.
Myndin hér að ofan er tekin á fyrstu úthlutun sjóðsins í janúar 2008.

