Megintilgangur sjóðsins er að stuðla að og styrkja menningar- og góðgerðastarfsemi á Íslandi og erlendis.
Áhersla er lögð á stuðning við verkefni sem geta haft víðtæk áhrif og virkað sem vítamínsprauta á samfélagið.
Stefnt er að því að með tímanum verði Aurora velgerðasjóður virkt og lifandi stuðningsafl í þróunarhjálp sem starfi náið með stjórnvöldum, hjálparstofnunum og íbúum á hverjum stað.
Að sama skapi leitast Aurora við að veita menningarstarfsemi á Íslandi öflugan stuðning. Verkefni eru valin að vandlega athuguðu máli og þeim er fylgt eftir eins og kostur er.
Sjóðurinn leggur áherslu á styrkja hvert verkefni myndarlega þannig að stuðningurinn geti jafnvel skipt sköpum fyrir tilurð og framgang þess. Aurora mun í sumum tilvikum hafa frumkvæði að verkefnum og hrinda þeim í framkvæmd í samvinnu við þá sem hlut eiga að máli.
Úthlutun úr sjóðnum fer fram einu sinni á ári, í janúarlok.
Þeir sem áhuga hafa á að sækja um styrk til sjóðsins er velkomið að senda inn umsókn sem inniheldur stutta lýsingu á verkefninu og fjárhagsáætlun til framkvæmdastjóra sjóðsins á netfangið: ae@aurorafund.is

