Hönnunarsjóður
Stofnun Hönnunarsjóðs Auroru markaði tímamót í hönnun á Íslandi því hér hafði aldrei verið til sérstakur sjóður sem styrkti hönnuði. Sjóðurinn er sjálfstætt starfandi dóttursjóður Auroru velgerðasjóðs en hann var stofnaður í ársbyrjun 2009 sem tilraunaverkefni og var honum veittar 75milljónir króna til þriggja ára.
Sjóðurinn hefur þau meginmarkmið að styrkja framúrskarandi hönnuði með heilsteypta viðskiptahugmynd og skýra framtíðarsýn.
Á fyrstu þrem árum sjóðsins hefur hann ráðstafað styrkjum til tæplega 40 verkefna og hönnuða auk þess að taka þátt í samstarfi um ýmis verkefni á sviði hönnunar. Sjóðurinn hefur veitt allnokkra framhaldsstyrki sem er í takt við þá stefnu sjóðsins að fylgja eftir völdum verkefnum þannig að sá árangur megi fremur nást sem viðkomandi hönnuður stefnir að.
Stjórn Auroru Velgerðasjóðs samþykkti í lok árs 2011 að tryggja starfsemi Hönnunarsjóðs Auroru næstu 3 árin eða til loka ársins 2014 og veita til þess verkefnis 75 miljónum króna eða 25 miljónum á ári. Stjórnin er sannfærð um að Hönnunarsjóður Auroru hefur gegnt mikilvægu hlutverki innan íslensks hönnunarsamfélags og skipt sköpum fyrir þá aðila sem notið hafa styrkja hans, og þá sérstaklega þeirra sem hlotið hafa endurtekna styrki frá sjóðnum. Stjórn Auroru telur einnig mikilvægt að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð var í upphafi, þ.e. að viðhalda gróskumiklu starfi allt árið um kring með eigin verkefnum, samstarfsverkefnum og ráðgjöf.
Hlín Helga Guðlaugsdóttir
vöruhönnuður starfaði sem framkvæmdastjóri Hönnunarsjóðs Auroru fyrstu þrjú starfsár sjóðsins og kom sjóðnum í þann góða farveg sem hann er nú í sem mikilvægur hluti af stuðningsumhverfi hönnuða á Íslandi.

Á myndinni er fyrsta stjórn Hönnunarsjóðs Auroru, Halla, Jóhannes, Ingibjörg og Hlín framkvæmdastjóri
Stjórn Hönnunarsjóðs Auroru frá janúar 2012 skipa:
- Jóhannes Þórðarsson, arkitekt, Formaður stjórnar
- Halla Helgadóttir, grafískur hönnuður og framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands, meðstjórnandi
- Hlín Helga Guðlaugsdóttir, vöruhönnuður, meðstjórnandi
Fagráð Hönnunarsjóðs Auroru hefur verið skipað:
- Áslaug Magnúsdóttir, TSM Capital í New York
- Eyþór Ívar Jónsson, frkvst. Klaks og dósent við Kaupmannahafnarháskóla
- Eyjólfur Pálsson, húsgagnahönnuður og eigandi Epal
- Sigurður Þorsteinsson, iðnhönnuður og eigandi Design Group Italia
- Sigríður Sigþórsdóttir, arkitekt og eigandi VA Arkitektar
- Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor í grafískri hönnun
- Steinunn Sigurðardóttir, fatahönnuður
Rökstuðningur stjórnar Auroru við stofnun sjóðsins:
Þörf er á sérstökum hönnunarsjóði á Íslandi til að styðja við bak efnilegra hönnuða en ekki síður til að efla grasrótarstarf í hönnun og vera vettvangur hugmynda og skapandi hugsunar í greininni. Stjórn Auroru vonar að nýi sjóðurinn stuðli að því að íslensk hönnun vaxi og dafni og verði ein af stoðunum sem skotið verði undir atvinnulífið við endurreisn þess.
Reyndar er engu líkara en að efnahagshrunið hafi beinlínis leyst úr læðingi frjóa hugsun og sköpunarkraft Íslendinga, meðal annars í hönnunarsamfélaginu. Hönnuðir sjá fjölda nýrra tækifæra til að leggja sitt af mörkum í endurreisnarstarfinu. Hönnunarsjóður Auroru getur orðið sá vettvangur sem nauðsynlegur er til að hrinda hugmyndum í framkvæmd í samvinnu hönnuða og atvinnulífs.
Nánar um Hönnunarsjóð Auroru á www.honnunarsjodur.is

