Kraumur tónlistarsjóður

Kraumur tónlistarsjóður var stofnaður í ársbyrjun 2008 sem tilraunaverkefni til þriggja ára.  Kraumur er sjálfstæð starfsemi á vegum Aurora velgerðasjóðs. Hann var stofnaður með  það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri.

Markmiðið er að styrkja stöðu ungra tónlistarmanna á Íslandi með beinum styrkjum, faglegri aðstoð og samstarfi af ýmsu tagi. Sjóðnum er sömuleiðis ætlað að ná markmiðum sínum með því að miðla þekkingu á sínu sviði, meðal annars með námskeiðahaldi, ráðgjöf og smiðjum (workshops) og með samstarfi við ýmsa þá sem vinna að sömu markmiðum.

Starfsemi Kraums hefur verið blómleg en sjóðurinn hefur átt fjölbreytt samstarf við ýmsa aðila innan tónlistargeirans.  Kraumur hefur styrkt um 100 tónlistarmenn, hljómsveitir og tónlistartengd verkefni um 60 milljonir króna.  Kraumur hefur m.a. styrkt tónleika og tónleikaferðalög heima og heiman, aðstoðað við markaðssetningu erlendis og staðið m.a. fyrir nýjum tónlistarviðurkenningum undir nafninu Kraumslistinn. 

Það er því ljóst að nærvera sjóðsins skiptir miklu máli í íslensku tónlistarlífi.  Í ljósi þess ákvað stjórn Auroru haustið 2010 að veita þessu kraftmikla starfi áframhaldandi brautargengi og leggja Kraumi tónlistarsjóði til aðrar 60 milljónir til næstu þriggja ára.   Eldar Ástþórsson lét af störfum sem  framkvæmdastjóri Kraums eftir að hafa leitt sjóðinn í gegnum fyrstu þrjú árin og mótað hann í mjög farsælan farveg.   Jóhann Ágúst Jóhannsson tók við  af Eldari sem framkvæmdastjóri Kraums í maí 2011.


Stjórn Kraums frá 2011 skipa:

Stjórn Kraums -María Huld Markan, tónlistarmaður, formaður.
-Ásmundur Jónsson framkvæmdastjóri, meðstjórnandi.
-Eldar Ástþórsson, verkefnisstjóri markaðsdeildar  CCP, meðstjórnandi.
Á myndinni er líka

:
-Jóhann Ágúst Jóhannsson framkvæmdastjóri Kraums



Fagráð Kraums frá 2011 skipa:

  • Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmdarstjóri Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, ÚTÓN.
  • Árni Heimir Ingólfsson,  tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
  • Árni Matthíasson, blaðamaður á Morgunblaðinu.
  • Björk Guðmundsdóttir, tónlistarmaður
  • Elísabet Indra Ragnarsdóttir, dagskrárgerðamaður hjá RÚV
  • Kjartan Sveinsson, hljómborðsleikari Sigur Rósar.
  • Örn Elías Guðmundsson (Mugison), tónlistarmaður


Í umsögn stjórnar Aurora velgerðasjóðs frá því í janúar 2008  þegar Kraumur var stofnaður segir meðal annars:
„Íslenskt tónlistarlíf er sérstakt um margt, einkum vegna áberandi krafts og áræðis sem einkennir tónlistarfólk af yngri kynslóðinni. Sykurmolarnir og Björk ruddu braut í tónlistarútrás sem á sér enga hliðstæðu. Fjöldamargir tónlistarmenn fetuðu í fótspor þeirra með undraverðum árangri og nú er tónlistarlíf á Íslandi orðið einn sterkasti þátturinn í ímynd lands og þjóðar út á við. Óvenjulegt samspil dægurtónlistar og sígildrar tónlistar getur orðið drifkraftur frekari landvinninga. Stuðningur við unga tónlistarmenn, til verkefna og samstarfs af ýmsu tagi, skýtur styrkari stoðum undir þennan mikilvæga vaxtarbrodd í íslensku menningarlífi.“

Nánari upplýsingar um Kraum tónlistarsjóð má finna á vefsíðu hans kraumur.is




Senda grein

Flýtileiðir



krakkar

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica