Aurora Velgerðasjóður styrkir ungan fatahönnuð frá Sierra Leone.

Adama Kai er ungur fatahönnuður frá Sierra Leone, sem hefur vakið nokkra athygli fyrir hönnun sína og áræðni.  Stjórn Auroru sá í Adömu þann kraft og þor sem þarf til að hafa víðtæk áhrif á ungt fólk í Sierra Leone.  Ef hún getur þá get ég !

Adama kaiÍ ferð Auroru til Sierra Leone 2009 kynntist Aurora ungum fatahönnuði frá Sierra Leone; Adama Kai sem hafði að loknu námi í fatahönnun í Parsons School of Design í París, ákveðið að setjast að í fæðingarborg sinni Freetown og stofna sitt eigið fyrirtæki þar.   Þegar við komum að hafði Adama þegar sett upp litla saumastofu, framleitt sína fyrstu fatalínu undir nafninu ASCHOBI Design og sett upp verslun í miðbæ Freetown.  Á facebook siðu sinni hafði Adama Kai sett sér það háleita markmið að verða fyrir Sierra Leone það sem Ralph Laurence var og er fyrir Bandaríkin.  Adama Kai er að mörgu leiti sú ímynd sem ungt fólk í Sierra Leone vantar.  Hún er vel gefinn, duglegur einstaklingur með framtíðarsýn og metnað fyrir sína hönd og Sierra Leone. Það þarf ekki að orðlengja það hversu stórt verkefni það er fyrir unga konu í Sierra Leone að setja upp framleiðslu og verslun þar sem nánast engin hefð er fyrir saumaskap, engin verkmenntun til staðar, saumvélar að mestu handknúnar, enda rafmagn af skornum skammti, auk þess sem hún þarf að berjast við fordóma starfsfólks síns (sem eru að mestu leiti karlmenn), vegna þess að hún er yngri en þeir og hún er kona.  

 

Aschobi logo

Á aðalfundi Auroru 2010 var samþykkt að sjóðurinn myndi styrkja gerð viðskiptaáætlunar fyrir fyrirtæki hennar Aschobi Design.  Gerður var samningur við franska ráðgjafa fyrirtækið Luxe Corp sem undirritaður var í maí 2010, um gerð viðskiptaáætlunar, markaðsrannsóknar og framkvæmdaáætlunar.  Viðskiptaáætlunin var unnin í nánu samstarfi Luxe Corp, Aschobi og Auroru en henni var ekki að fullu lokið í lok árs 2010.  Niðurstöður viðskiptaáætluninnar voru kynntar fyrir fulltrúum stjórnar og í framhaldi af því var ljóst  að Aurora myndi ekki styrkja Aschobe Design frekar, enda fjárþörf og áhætta of mikil fyrir starfsemi sjóðsins.  Hins vegar hefur stjórn sjóðsins og stofnendur haldið áfram  að styðja við bak hönnuðarins sem ráðgjafar og leiðbeinendur og hyggjast gera það áfram eða þar til að Aschobi Design er tilbúið að leita  sér fjárfesta. Í framhaldi af kynningu viðskiptaáætlunar sömdu stofnendur Auroru við Elínu Stefánsdóttur  viðskiptafræðing um að taka að sér tímabundið verkefni við að aðstoða Adömu við útfærslu og aðlögun viðskiptaáætlunarinnar. 


Aschobi tíska
Senda grein

Flýtileiðir



tonleikar-krakkar

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica