Menntaverkefni Aurora í Síerra Leóne

Markmiðið er að styðja Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, og stjórnvöld Síerra Leóne í því að tryggja öllum börnum á skólaaldri grunnmenntun fyrir 2015. Aurora velgerðasjóður og UNICEF á Íslandi munu vinna í sameiningu að því marki að 85% barna í Síerra Leóne njóti grunnmenntunar í skóla árið 2010.

Menntaverkefni Auroru í Síerra Leóne

Copy_(2)_of_Sierre_Leone040

Markmiðið er að styðja UNICEF og stjórnvöld Síerra Leóne í því að tryggja öllum börnum á skólaaldri grunnmenntun fyrir 2015.   Stofnað var til verkefnisins árið 2008 en þá var ákveðið að Aurora velgerðasjóður og UNICEF á Íslandi myndu vinna í sameiningu að því marki að 85% barna í Síerra Leóne njóti grunnmenntunar í skóla árið 2010.

Styrktarverkefnið í Síerra Leóne er hið stærsta og umfangsmesta á vegum Auroru velgerðasjóðs til þessa. Í krafti þess hafa nú þegar á annað hundrað kennarara hlotið endurmenntun og um 60 skólabyggingar hafa risið með tilheyrandi vatnsveitu- og frárennsliskerfum, húsbúnaði og kennslugögnum.  Í hverju húsi eru þrjár til sex skólastofur þar sem börnum á aldrinum 6-12 ára er kennt.   Mikil áhersla var lögð á gæði námsins og að laga það sem best að þörfum barnanna og þá sérstakleg stúlkubarna.  Markmiðið er að halda stúlkunum sem lengst í skóla og koma þannig í veg fyrir að þær gangi í hjónaband og hefji barneignir á æskuárum.  Nærsamfélagið var einnig virkjað með því að stofna foreldrafélög við skólana og mæraklúbba.

Picture_231

Í júní 2011 kom út skýrsla um verkefnið fyrir tímabilið júní 2009 -  júní 2011 þar sem kemur fram 9% aukning nemenda í skólum í Kono héraði og 11% aukning menntaðra kennara á svæðinu.  Það kom fram að tæp 46% af þeim sem útskrifast úr grunnskólum héraðsins séu stúlkur sem er merkjanleg aukning skólasóknar stúlkna á þessu tveggja ára tímabili.

Það er því ljóst að verkefnið hefur skilað börnum á svæðinu aðgengi að menntun sem þau annars hefðu ekki átt kost á og sérstaklega stúlkum serm er í takt við markmiðin sem sett voru í upphafi.  Ánægjulegt er að sjá að aukin gæði náms eru merkjanleg en ýmsar aðhalds aðgerðir voru skipulagðar til að tryggja það.  Þar má taka sem dæmi aukna þátttöku nærsamfélagsins í skólastarfinu með stofnun foreldrafélaga og mæðraklúbba.

Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland, segir að frá því Aurora velgerðasjóður og UNICEF hófu samstarf um menntaverkefni í einu fátækasta ríki heims, Síerra Leóne, hafi verið lyft grettistaki í menntamálum í þeim héruðum sem verkefnið nær til. „Ætla má að yfir 10.000 börn hafi fengið tækifæri til að ganga í skóla. Það er eindregið álit UNICEF að aukin menntun sé besta leiðin til að aðstoða fólk við að losna úr viðjum fátæktar. Stuðningur Auroru til þessa verkefnis er því afar mikilvægur.“



Senda grein

Flýtileiðir



tonleikar-krakkar

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica