Rauði krossinn fær 20 milljón króna styrk 2009

Álag hefur aukist mikið á Hjálparsímann og Vin frá því holskefla efnahagskreppunnar reið yfir samfélagið. Samstarf er milli Vinnumálastofnunar og Rauða krossins um móttöku á fólki sem vill halda sér virku í samfélaginu með því að gerast sjálfboðaliðar og RKÍ-deildir hafa boðið upp á aðstoð, ókeypis fræðslu og námskeið, einkum varðandi sálrænan stuðning. Rauði krossinn hyggst nýta framlag Auroru velgerðasjóðs til að styrkja alla þessa þætti starfsemi sinnar.

Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, segir að stuðningur Auroru velgerðasjóðs komi sér augljóslega vel á tímum þegar þörfin fyrir aðstoð aukist svo mikið sem raun beri vitni um vegna efnahagshrunsins: „Framlag Auroru gerir okkur kleift að efla viðbrögð Rauða krossins við efnahagsþrengingum um allt land.“


Rökstuðningur stjórnar Auroru:
Rauði krossinn nýtur virðingar fyrir umfangsmikið mannúðarstarf sitt heima og heiman þar sem fagmennska og óeigingirni er í fyrirrúmi. Aurora velgerðasjóður ákvað að veita þeim aðstoð sem verst verða úti í efnahagskreppunni á Íslandi og þá lá beinast við að leita til Rauða krossins um samstarf. Stundum getur verið erfitt að leita sér hjálpar í hinu félagslega kerfi á hverjum stað þar og menn upplifa óþægilega mikla nálægð við náungann. Rauði krossins er hins vegar ekki eins tengdur nærumhverfi skjólstæðinga sinna og nýtur hlutleysisímyndar sinnar. Verkefnin þrjú, sem Aurora styrkir í ár, eru ólík en þjóna í heild mismunandi hópum sem eiga um sárt að binda.

1717

  • Hjálparsíminn 1717 er gjaldfrjáls og opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem leita aðstoðar vegna kvíða, þunglyndis, depurðar eða jafnvel sjálfsvígshugsana. Hringingar í 1717 voru á þriðja tug þúsunda á árinu 2008, sem er veruleg aukning frá fyrra ári. Álagið á Hjálparsímann var þannig 40% meira í okóber og nóvember 2008 en í sömu mánuðum árið 2007.
  • Aðgerðir Rauða krossins fyrir atvinnulausa og aðra sem eiga erfitt vegna efnahagskreppunnar. Deildir Rauða krossins hafa boðið upp á sálrænan stuðning, ráðgjöf, fræðslu og ókeypis námskeið til aðstoða fólk við að takast á við nýjar og breyttar aðstæður. Rauði krossinn styðst hér meðal annars við reynslu frá því í efnahagskreppunni í Finnlandi fyrir nokkrum árum. Þar líkt og hér stóðu einstaklingar og fjölskyldur skyndilega á afar alvarlegum tímamótum atvinnumissis og tilheyrandi erfiðleika sem bregðast þurfti við.
  • Áhrif efnahagskreppunnar á starfsemi Vinjar eru ekki eins skýr og varðandi Hjálparsímann en eiga að líkindum eftir að verða greinilegri á næstu mánuðum og misserum. Um 27 gestir komu að jafnaði í athvarfið á degi hverjum árið 2008. Þeim fjölgaði á síðasta fjórðungi ársins 2008 og matargestum sömuleiðis. Starfsfólk Rauða krossins og sjálfboðaliðar merkja áhyggjur gesta í Vin af afkomu sinni og stöðu í framtíðinni, ekki síst vegna verðhækkana á matvörum og  þjónustu af ýmsu tagi.  Spenna, biturð, óvissa og kvíði í samfélaginu öllu hefur mikil áhrif á þá sem veikir eru fyrir.

 

Senda grein

Flýtileiðir



strakur

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica