Styrkur til tækjakaupa 3 milljónir 2011
Aurora Velgerðasjóður styrkti Rústabjörgunarsveitna Ársæl um 3.milljónir króna til tækjakaupa en komið var að nauðsynlegri endurnýjun tækjakosts þeirra.
Rústabjörgunarsvetin Ársæll er hluti af Alþjóðabjörgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar og sinnir óveðursaðstoð, viðbrögðum við jarðskjálftum og ofanflóðum í byggð á landsvísu. Sveitin vann mikið þrekvirki við erfiðar aðstæður á Haítí í kjölfar jarðskjálftans í janúar 2010 en þeir voru með fyrstu björgunarsveitum á svæðið. Komið er að ýmsu viðhaldi og endurnýjun á þeim sérhæfða búnaði sem hópurinn hefur yfir að ráða og ákvað því Aurora Velgerðasjóður að styrkja sveitina um 3 milljónir króna.

Á myndinni eru Auður og Sigurður fulltrúar Auroru í heimsókn hjá Rústabjörgunarsveitinni en þar fengu þau góða kynningu á starfseminni og að sjá nýju tækin og búnaðinn sem styrkurinn var notaður til.

