Aurora Velgerðasjóður styrkir sviðslistir um 10 milljónir króna 2011
Með þessum styrk vill Aurora efla enn frekar sviðslistir (leiklist, danslist og sönglist) með því að styrkja framúrskarandi og metnaðarfull verkefni en það er ljóst að sviðslistir á Íslandi eru í mikilli framþróun og hefur sköpunarkrafturinn vakið athygli út fyrir landsteinana

Á mynd hér að ofan eru: Helga Arnalds ( 10 Fingur), Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir (Íslenska Dansflokknum), Rakel Garðarsdóttir (Vesturport), Auður Einarsdóttir og Sigurður Guðmundsson (Aurora Velgerðasjóður), Friðgeir Einarsson og Hlynur Páll Pálsson (16 elskendur)
Formleg úthlutun sviðslistastyrksins fór fram þann 25.maí en þau verkefni sem hlutu styrk eru:
· Vesturport , nýtt leikrit byggt á þjóðsögunni um Axlar-Björn…….kr.4.000.000
· Íslenski dansflokkurinn , uppfærsla á verkinu Minus 16………....…...kr.3.000.000
· 16 elskendur, Sýning ársins…………………….....................…………………....kr.2.000.000
· Brúðuleikhúsið 10 fingur, Litla skrímslið……...............………………………kr.1.000.000
Nánar um verkefnin:
VESTURPORT fær styrk til að vinna að leiksýningu upp úr þjóðsögninni um AXLAR-BJÖRN. Vesturport hefur vakið athygli langt út fyrir landsteina fyrir áræðni og listfengi í efnistökum á klassískum verkum. Skemmst að minnast Evrópsku leiklistarverðlaunanna, þar sem þau hlutu eina helstu viðurkenningu sem sviðslistamönnum getur hlotnast. Verkefnið sem þau hljóta nú styrk til að vinna er nýr áfangi í þeirra sögu, því að þessu sinni hyggjast þau að takast á við fornan arf þjóðarinnar og munu þannig nema nýjar lendur í listsköpun sinni. Höfundur og leikstjóri verksins er Björn Hlynur Haraldsson, um tónlistina sér Kjartan Sveinsson í Sigurrós. Axlar-Björn var frumsýndur 11.janúar 2012.
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN fær styrk að til að ráðast í það metnaðarfulla verkefni að fá hinn kunna danshöfund Ohad Naharin til að sviðsetja verk sitt MINUS 16 sérstaklega fyrir ÍD. Naharin er einn virtasti og eftirsóttasti danshöfundur heims um þessar mundir og hefur ÍD lengi haft hug á að fá hann til samstarfs. Má gera ráð fyrir að samstarfið við svo eftirsóttan danshöfund muni leiða dansflokkinn enn lengra fram á við. Það er óhætt að segja ÍD er í fararbroddi í nútíma listdansi hér á landi og hefur jafnframt með áratuga löngu starfi sínu og miklum metnaði einnig vakið athygli erlendis fyrir listfengi sitt og hæfni. Minus 16 var frumsýnt 11.febrúar 2012.
16 ELSKENDUR fær styrk til að setja upp verkið SÝNING ÁRSINS. 16 elskendur er hópur ungra og framsækinna leikhúslistamanna úr ýmsum greinum sviðslista en þau hafa vakið athygli fyrir rannsóknarvinnu sína á samtvinnun sviðslista og samfélags. Þetta er nýstárleg sýning sem byggð er á skoðanakönnun meðal fólks um “sýninguna sem allir vilja sjá” og “sýninguna sem enginn vill sjá” en saman verður þetta Sýning ársins. Með þessu vilju þau varpa ljósi á það hvað íslenskir áhorfendur vilja helst og síst sjá í leikhúsi sem og vekja upp spurningar um gildi og trúverðugleika skoðanakannana eins helsta skoðanamótandi tæki samtímans. Sýning ársins var frumsýnd 3.mars 2012.
LEIKHÚSIÐ 10 FINGUR fær styrk til að vinna að brúðuleikhússýningunni LITLA SKRÍMSLIÐ eftir Helgu Arnalds. Brúðuleiklist er ung listgrein hér á landi en hefur hin síðari ár eflst til muna fyrir atorku og listfengi örfárra brúðuleikhúslistamanna. Þar í hópi er Helga Arnalds og leikhús hennar 10 FINGUR. Sýningunni er ætlað að virkja börn á leikskólaaldri til listsköpunar meðan á sýningunni stendur og sá frjókornum sköpunar meðal ungra áhorfenda. Um leikstjórn sér Charlotte Bøving og um tónlistina sér Eivör Pálsdóttir. Litla skrímslið var frumsýnt 3.mars 2012.


