Aurora velgerðasjóðurinn ákvað 23. janúar 2008 að stofna sjálfstæðan sjóð til stuðnings íslensku tónlistarlífi og veita 20 milljónir króna sem stofnfé sjóðsins. Jafnframt er ráðgert að Aurora leggi sjóðnum til 15 milljónir króna á árinu 2009 og annað eins árið 2010 eða alls 50 milljónir króna á árunum 2008-2010.
Í rökstuðningi sjóðsstjórnar segir
„Íslenskt tónlistarlíf er sérstakt um margt, einkum vegna áberandi krafts og áræðis sem einkennir tónlistarfólk af yngri kynslóðinni. Sykurmolarnir og Björk ruddu braut í tónlistarútrás sem á sér enga hliðstæðu. Fjöldamargir tónlistarmenn fetuðu í fótspor þeirra með undraverðum árangri og nú er tónlistarlíf á Íslandi orðinn einn sterkasti þátturinn í ímynd lands og þjóðar út á við. Óvenjulegt samspil dægurtónlistar og sígildrar tónlistar getur orðið drifkraftur frekari landvinninga. Stuðningur við unga tónlistarmenn, til verkefna og samstarfs af ýmsu tagi, skýtur styrkari stoðum undir þennan mikilvæga vaxtarbrodd í íslensku menningarlífi.
Stjórn Aurora er sannfærð um að stofnun og starfsemi Kraums tónlistarsjóðs muni skapa forsendur til að auðvelda ungu, íslensku tónlistarfólki að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri með markvissri vinnu og samstarfi einstaklinga, fagaðila og fyrirtækja.“
Nýi sjóðurinn til styrktar íslensku tónlistarlífi hefur fengið nafnið Kraumur.
Framkvæmdastjóri
Eldar Ástþórsson, framkvæmdastjóri Kraums
eldar.astthorsson@aurorafund.is
Heimilisfang
Kraumur tónlistarsjóður
Laugavegi 28
101 Reykjavík
www.kraumur.is
Stjórn
Þórunn Sigurðardóttir, stjórnarformaður Kraums
thorunn@artfest.is
Ásmundur Jónsson, meðstjórnandi
asi@smekkleysa.net
Pétur Grétarsson, meðstjórnandi
pegre@simnet.is

