Aurora velgerðasjóðurinn ákvað 20. janúar 2008 að fjármagna viðbyggingu barnadeildar héraðssjúkrahússins í Mangochi í Afríkuríkinu Malaví. Framlagið nemur 220.000 evra, jafnvirði um 20 milljóna íslenskra króna á gengi í janúar 2008. Í rökstuðningi sjóðsstjórnar segir:
„Brýnt er að auka og efla heilbrigðisþjónustu í Malaví, ekki síst við börn. Tíunda hvert lifandi fætt ungabarn deyr og sautján börn af hverjum hundrað deyja áður en þau verða fimm ára. Þarna er því augljóslega verk að vinna og Aurora velgerðasjóður ætlar að leggja sitt af mörkum til að bæta heilbrigðisþjónustu við barnadeild héraðssjúkrahússins í Mangochi í Malaví.
Stjórn sjóðsins kynnti sér aðstæður á vettvangi haustið 2007 og ákvað í kjölfarið að taka upp samstarf við stjórn héraðsstjúkrahússins og heilbrigðisyfirvöld í Malaví um að stórbæta aðstæður sjúklinga og starfsfólks á barnadeild sjúkrahússins. Ráðinn hefur verið verktaki til framkvæmda og sá er Þróunarsamvinnustofnun Íslands að góðu kunnur. Stjórn Aurora fylgist grannt með framgangi verkefnisins og er þess fullviss að það verði til heilla fyrir börn og foreldra þeirra í Mangochi.“

