Síerra Leóne


AfríkaMenntaverkefni á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Afríkuríkinu Síerra Leóne hlaut styrk úr Aurora velgerðasjóðnum 20. janúar 2008, alls tvær milljónir Bandaríkjadala eða jafngildi 123,5 milljóna króna á gengi í janúar 2008. Verkefnið er til þriggja ára.

Í rökstuðningi sjóðsstjórnar segir:

„Menntun er eitt helsta vopnið gegn fátækt i heiminum og gefur einkum börnum færi á mannsæmandi lífskjörum, eykur sjálfsvirðingu þeirra og hefur víðtæk áhrif til að skapa upplýst samfélag. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur að mati stjórnar Aurora velgerðasjóðs gert heildstæða aðgerðaáætlun um uppbyggingu grunnmenntunar í Síerra Leóne, einu fátækasta ríki heims. Þar er ráðist er að rótum vandans og tekið á flestum þáttum sem standa í vegi þess að börn á grunnskólaaldri, einkum stúlkur, njóti þeirra menntunar sem þau eiga rétt á. Stjórnarmenn Aurora hafa kynnt sér aðstæður í Síerra Leóne, auk þess sem stofnendur sjóðsins áttu gott samstarf við starfsfólk UNICEF vegna menntaverkefnis sem lokið var þar í landi vorið 2007. Nýja menntunarverkefnið verðskuldar stuðning Aurora og sjóðsstjórn treystir starfsfólki UNICEF til að skila því af sér með sóma.“

Senda grein


Flýtileiðir


skolastofa
Þetta vefsvæði byggir á Eplica